Þjónustuskilmálar

Skilmálar

Neðangreindir skilmálar gilda fyrir vefverslun Boringerfun.is. Neytendur eru hvattir til að lesa skilmála þessa vel áður en verslað er á vefverslun Boringerfun.is. 

Um notkun vefsíðu og vefverslun Boringerfun.is gilda eftirfarandi skilmálar:

Almennt

Með því að nota vefsíðu og vefverslun Boringerfun.is samþykkir neytandi að hann hafi kynnt sér, skilið og samþykkt skilmála þessa eins og þeir eru hverju sinni.

Boring ehf.

Kt. 670526-0380

Gulaþing 16, 203 Kópavogur

845-4234.

Facebook: https://www.facebook.com/boringerfun.is 

Instagram: https://www.instagram.com/boringerfun.is/

Netfang: boringerfun@boringerfun.is

Boringerfun.is áskilur sér rétt til þess að breyta reglum og skilmálum þessum án fyrirvara.

Verð

Öll verð á síðunni eru með virðisaukaskatti og eru birt með fyrirvara um innsláttarvillur, prentvillur og myndvillur. Sendingarkostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram.

Boringerfun.is áskilur sér rétt til þess að breyta verði án fyrirvara og að hætta við pantanir ef verð vörunnar er rangt skráð í vefverslun.

Gjaldmiðill: ISK

Vöruskil

Skilaréttur er 14 dagar frá móttöku vöru. Kaupandi er ábyrgur fyrir þeirri rýrnun á verðgildi vöru sem stafar af meðferð vörunnar, annarrar en þeirrar sem nauðsynleg er til að staðfesta eiginleika, einkenni og virkni hennar. Seljandi áskilur sér rétt til að sannreyna að varan sé í lagi, þó innan eðlilegra tímamarka. Hægt er að skipta í aðra vöru, fá inneignarnótu eða fá vöruna endurgreidda með sama máta og greitt var fyrir hana.

Sendingarkostnaður fæst ekki endurgreiddur og kaupandi ber ábyrgð á sendingunni þar til hún hefur borist Boring er Fun. 

Kaupandi getur komið ósk sinni um skipti/skil á vöru á framfæri við seljanda með tölvupósti á boringerfun@boringerfun.is

Gölluð vara 

Komi upp galli í vöru er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingarkostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum sé þess krafist. Vinsamlegast sendið okkur tölvupóst á boringerfun@gmail.com með upplýsingum um galla vörunnar. Tilkynningarfrestur kaupanda vegna galla í vöru er tvö ár eða eftir atvikum fimm ár ef hluti er ætlaður verulega lengri endingatími en almennt gerist sbr. 2. mgr. 27. gr. laga um neytendakaup. Að öðru leyti vísast til laga um neytendakaup nr. 48/2003.

Greiðsla

Boring er Fun er eigandi vöru þar til andvirði hennar er að fullu greitt.

Greiðslur fara fram í gegnum örugga greiðslugátt Teya.

Hægt er að greiða með Apple Pay.

Afhending 

Afgreiðslutími pantana er 2-5 virkir dagar. Sé vara ekki til á lager munum við hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar eða varan endurgreidd sé þess óskað.

Kaupandi ber ábyrgð á að gefa upp rétt heimilisfang og velja réttan afhendingarmáta við pöntun. Vörur eru að jafnaði póstlagðar næsta virka dag eftir pöntun. 

Pantanir eru ekki afgreiddar fyrr en kaupandi hefur sannanlega innt greiðslu af hendi. Boring er Fun ber fulla ábyrgð á vöru þar til hún telst afhent kaupanda.

Áhætta af söluhlut flyst yfir til neytenda þegar hann hefur veitt honum viðtöku sbr. 14. gr. laga um neytendakaup nr. 48/2003. Þegar áhætta af hinni seldu vöru hefur flust yfir til kaupanda hefst skylda hans til þess að greiða kaupverðið þótt varan kunni eftir það að farast, skemmast eða rýrna ef um er að ræða atvik sem ekki má rekja með beinum hætti til seljanda.

Vörur eru afhendar með Íslandspósti og fer verðið eftir verðskrá þeirra hverju sinni.

Sendingakostnaður er reiknaður í greiðsluferli. Frí heimsending er á pöntunum ef verslað er fyrir 15.000 kr. og yfir nema annað komi fram í lýsingu á vöru.

Öryggisskilmálar

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila, nema svo beri skylda til gagnvart lögum.

Lög og varnarþing 

Skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna skilmála þessa skal reka það fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. 

Að öðru leyti en að ofan greinir gilda um skilmála þessa ákvæði gildandi laga um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga (nú nr. 77/2000), ákvæði laga um neytendasamninga nr. 16/2016, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem neytendur eiga rétt á í lögum um neytendasamninga byrja þegar móttaka vöru hefur átt sér stað.